Sunday, March 9, 2008

Mikið í gangi eins og er...

Já, það er alveg rétt það sem að fram kemur í fyrirsögninni það er mikið að gera í mörgu. Til að byrja með að þá er alveg ágætur slatti að gerast í skólanum og ég þarf að sparka í rassinn og koma mér alvarlega í svaðalegan lærigír (sem að er ekki alveg ég eins og er þar sem að ég er alveg mjööög löt að gera skólaverkefni að einhverri ástæðu). Svo er nóg að gera líka fyrir 22. mars að dreifa boðsmiðum (sem ég hef því miður ekki komist í eins og ég vildi helst, en það kemur). Ég ætla að klára eins mikið og ég get áður en að kallinn kemur 17. mars þannig að maður geti notið páskaFRÍsins út í ystu æsar, sjáum hvernig það allt fer, ég fer þetta líklega allt á þrjóskunni en já...ég er að fara í mat til gömlu núna þannig að þetta verður stutt og laggott færsla í dag. En þangað til næst að þá vona ég að mér detti eitthvað skemmtilegt í hug að skrifa um (það er reyndar alveg til fullt að skrifa um það er bara spurning um tíma til að gera það!)...

over and out...

1 comment:

Unknown said...

Góðann daginn...

Hvað er enginn að kommenta hérna eða, hversu glatað er þetta lið sem að les þessar bloggsíður.

Áhvað bara að henda inn mínu commenti enda er ég að lesa í fyrsta skipti, sá link inná síðuna frá Hörpu Gísla.

Var að frétta að þú værir kominn með einhvern kjell(á ekki að lesast sem kjell gernard) á arminn. Gangi þér vel með það allt samann.

Kveðja úr Liverpool borg.
Andri.