over and out...
Sunday, March 9, 2008
Mikið í gangi eins og er...
Já, það er alveg rétt það sem að fram kemur í fyrirsögninni það er mikið að gera í mörgu. Til að byrja með að þá er alveg ágætur slatti að gerast í skólanum og ég þarf að sparka í rassinn og koma mér alvarlega í svaðalegan lærigír (sem að er ekki alveg ég eins og er þar sem að ég er alveg mjööög löt að gera skólaverkefni að einhverri ástæðu). Svo er nóg að gera líka fyrir 22. mars að dreifa boðsmiðum (sem ég hef því miður ekki komist í eins og ég vildi helst, en það kemur). Ég ætla að klára eins mikið og ég get áður en að kallinn kemur 17. mars þannig að maður geti notið páskaFRÍsins út í ystu æsar, sjáum hvernig það allt fer, ég fer þetta líklega allt á þrjóskunni en já...ég er að fara í mat til gömlu núna þannig að þetta verður stutt og laggott færsla í dag. En þangað til næst að þá vona ég að mér detti eitthvað skemmtilegt í hug að skrifa um (það er reyndar alveg til fullt að skrifa um það er bara spurning um tíma til að gera það!)...
Monday, February 11, 2008
Framhaldið!!!
Jæja, þá er held ég alveg um að gera að rita smá vegis pistil hér um sambúð og fleira sem að ég lofaði víst í síðustu færslu. En já við erum þrjár "skvísos" sem að leigjum saman hérna í RVK og það er alveg æðislegt, gengur einhvernvegin bara mjög vel að búa saman í sátt og samlyndi sem er auðvitað mjööög gott! :) En, en...einhvertíman verður eitthvað að breytast það eru jú alltaf breytingar í lífinu og það er jú bara gott allt saman...vonandi! Allavega að þá er ein okkar búin að kaupa sér miða til Noregs og ætlar að flytjast þangað bara núna 30. mars sem að er jú bara á næsta leiti þannig að við tvær sem að eftir erum þurfum að finna einhverja til að fylla upp í tóma"rúmið" sem myndast þegar hún fer, sem að gengur vonandi bara vel að redda því eins og maður segir á góðri íslensku...
Yfir í annað og meiri vinnu...í dag var annar mánudagur með 2.bekk þar sem að ég er að leysa af aðeins og þau voru nú alveg nett hress skal ég segja ykkur! Sérstaklega einn drengur sem að var alveg fínn á síðasta mánudag og þeir tveir sem ég tók mest eftir í síðustu viku voru eins og englar í dag sem var æði! En já þessi sem að var að gera mér daginn bara hressilega "spennandi" og reyndi soldið á mann að hann var á hlaupum liggur við hingað og þangað, ég talaði við hann nokkrum sinnum og ég gaf honum síðustu viðvörun (eftir alveg frekar mikla þolinmæði) og eftir það var svo rölt, reyndar meira eins og dregið-drattast niður til skólastjórans, aðstoðarskólastjórinn reynar tók vel á móti honum á sófa frammi á gangi og þau ræddu saman. Komu svo upp í stofu eftir það og frímínótna snjóboltaslagur var útskýrður og afskrifaður af dagskrá, allavega svona eins og hægt var. Hann vann svo mjööög vel í skrift og gerði alveg það sem átti að gera og fór í stærðfræði meira að segja! Vann sem sagt mjög vel inn á milli þess að vera að hlaupa upp og niður stiga hér og þar og út um stofuna hér og þar líka og svona nett að trufla bekkjarfélaga sína. Í lok dagsins á bekkjarfundinum þegar við sátum öll í hring á dýnum á gólfinu, eða já næstum því allir voru kyrrir (tveir sem að höfðu ekkert að segja og máttu klára að teikna myndina sína í sætunum án þess að segja nokkuð) og þessi áðurumræddi drengur hann fór á hlaup um stofuna en ég náði honum með hjálp frá þeim dreng sem að var alveg að fara yfirum fyrri mánudaginn, mjög skondið að hann stoppaði hann af fyrir mig og bara sagði, hérna ég náði honum fyrir þig og settist svo niður eins og algjör moli! En já ég sem sagt sat með drenginn í fanginu og þurfti alveg að halda höndunum, þá reyndi hann að hreyfa sig lausann með löppunum og komst aðeins áfram þannig að hann lá á lærinu á mér (ég í indiánastellingu) og undir annari hendini hjá mér þangað til að ég náði honum í bóndabeygju og sat með hann þannig alveg restina af deginum sem var alveg 15 - 20 mín. og hann róaðist nú aðeins og sat einn hjá mér samt í svona 1 - 2 mín. þá reyndi hann að koma sér í burtu frá króknum til að fara á flakk og fékk þá bara að sitja hjá mér í bóndabeyju aðeins lengur...en já ég fann alveg að hann róaðist og tók því bara eins og það kom og slappaði bara aðeins af meðan hann sat hjá mér en það tók alveg á þegar hann var að reyna að spyrna sér frá mér...úff...þetta var alveg æfing sko! :)
Þá er ég held ég búin að fá slatti góða útrás í dag og um daginn í dag....þannig ég býð góða nótt og bara sé hvenær ég hef næst eitthvað marktækt að segja og góða leið til að segja frá því og þar fram eftir götum... ;)
Góða nótt og ég ætla að sofa rótt í alla nótt....alveg þangað til ég þarf að vakna í skólann í fyrramálið! :)
Tuesday, February 5, 2008
Í skólanum í skólanum....no comment!

Jæja, þá er maður búin að vera að kenna aðeins svona í forfallakennslu og það er nú bara ágætt sko. Kenndi 5 bekk á miðvikudaginn í síðustu viku og svo 2 bekk núna á mánudaginn (bara í gær). Þetta er alveg svakalega gaman og sérstaklega með þessi í yngri bekkjunum, þá er ég að tala alveg frá 5 og niður úr (er reyndar ekki búin að kenna mikið í 6-7 en já), það er svo allt annað en að kenna í gaggó sem er líka mjög gaman reyndar en það er öðruvísi gaman bara. Krakkar eru svo hreinskilnir að það er yndi stundum...nema ef þau spyrja mann hvort maður sé 35 ára og ólétt eða eitthvað...haha...segi svona. Allavega þá gekk þetta mjög vel og þau sögðu manni alveg ef þau voru að fíla mann eða ekki og það er nottla bara flott mál! :) Svo í lok gærdagsins að þá sat maður með þau nokkur í kringum sig að búa til Origami fugla fyrir þau þar sem að ég gerði þau "mistök" að taka einn dreng sem að var soldið, ekki beint erfiður en ég þurfti alveg að halda honum að efninu annars var ekkert gert eða þá að það var farið að stríða bekkjarsystkynum, en við settumst saman við borð og hann föndraði fulg með mér á meðan ég var að tala við alla hina krakkana líka og þau voru að gera sitt og líka spurja hvað við værum að gera, bara svona eins og gengur, og hann var svo ánægður að hafa getað þetta (með smá hjálp) þó að honum hafi fundist þetta ljótt og hann gæti ekki gert þetta að þá talaði ég hann til og við kláruðum okkur vel sko! :) Þannig ég náði honum niður og nokkrum á "mitt band" sem að var mjög gott á sinn hátt svo sem. Svo var einn sem að er víst frekar erfiður og ég var búin að lofa að gera fugl fyrir hann og það tafðist eitthvað eða hvort að bekkjarsystkyn voru "frekari" en allaveg að þá fékk hann sinn fugl ekki eins fljótt kanski og hann hafði viljað og það var jú mánudagur og skólinn var búinn að vera strembinn, þá var hann soldið lítill í sér og fór í netta fílu út í mig. En ég tók hann til mín á stól hjá kennaraborðinu og við gerðum einn fugl í flýti og mér fannst yndi þegar hann sagðist nú ekki læra að gera hann af þessu!!! En þegar ég benti honum á að ég hefði lært að gera svona með því að taka hann í sundur og setja hann saman að þá fór hugsunin af stað og hann byrjaði um leið að taka hann í sundur, ég sýndi honum smá trikk svona svo að fuglinn myndi nú ekki rifna í spað en já ég held að hann hafi alveg verið sáttur við allt svona í lok dagsins allavega... :)
Ohh...well...sambúð og fleira verður rætt í næsta bloggi (fer ekki að segja neitt um hvenær eða hve langt eða neitt um það mál núna samt :) )
Monday, January 28, 2008
úff...
Ja hérna, ég er nú ekki alveg viss um það hvernig þetta verður allt saman þar sem að ég er nú ekki alveg svona "dagbókartýpan" eða ekki svona þannig séð. Allavegana datt mér það í hug að hafa svona blogg á íslensku, er með eitthvað á ensku sem er hér en eins og þið sjáið nú ef þið kíkið á það að þá er ég ekki að fara yfirum á skrifum á því síðugreyi. Jæja þá held að þetta sé alveg ágætis byrjun þó að ég segji sjálf frá þarf að fá andan yfir mig til að það komi eitthvað kraftaverk hingað á bloggið, já eða á tóma wordskjalið sem að á að heita lokaverkefnið mitt! Þetta er ekki alveg að gera sig hjá mér...ótrúlegt hvað maður getur verið latur og búin að fá nóg hreinlega á því að vera í skóla, langar bara að fara að vinna og svo þegar að maður kæmi heim úr vinnunni þá myndi maður gerast sófakartafla (draumurinn er auðvitað að vera dugleg að skokka í Laugardalinn og skella sér í sund, synda svona eins og kílómeter og rölta svo heim aftur, það gerist vonandi einhvern "góðan veðurdag") og bara slappa af áður en maður færi svo upp í rúm og undir sæng...en þetta eru víst bara hugleiðingar enn sem komið er, þangað til að þá held ég áfram að skúra, gera heimilishluti (sem ég myndi líka gera með vinnu svo sem) og reyna að vera dugleg að læra.
Þangað til næst....písát, Lena
Subscribe to:
Comments (Atom)