Monday, January 28, 2008

úff...

Ja hérna, ég er nú ekki alveg viss um það hvernig þetta verður allt saman þar sem að ég er nú ekki alveg svona "dagbókartýpan" eða ekki svona þannig séð. Allavegana datt mér það í hug að hafa svona blogg á íslensku, er með eitthvað á ensku sem er hér en eins og þið sjáið nú ef þið kíkið á það að þá er ég ekki að fara yfirum á skrifum á því síðugreyi. Jæja þá held að þetta sé alveg ágætis byrjun þó að ég segji sjálf frá þarf að fá andan yfir mig til að það komi eitthvað kraftaverk hingað á bloggið, já eða á tóma wordskjalið sem að á að heita lokaverkefnið mitt! Þetta er ekki alveg að gera sig hjá mér...ótrúlegt hvað maður getur verið latur og búin að fá nóg hreinlega á því að vera í skóla, langar bara að fara að vinna og svo þegar að maður kæmi heim úr vinnunni þá myndi maður gerast sófakartafla (draumurinn er auðvitað að vera dugleg að skokka í Laugardalinn og skella sér í sund, synda svona eins og kílómeter og rölta svo heim aftur, það gerist vonandi einhvern "góðan veðurdag") og bara slappa af áður en maður færi svo upp í rúm og undir sæng...en þetta eru víst bara hugleiðingar enn sem komið er, þangað til að þá held ég áfram að skúra, gera heimilishluti (sem ég myndi líka gera með vinnu svo sem) og reyna að vera dugleg að læra. 
Þangað til næst....písát, Lena

2 comments:

Eva said...

Hæ skvís,

Velkomin á blogspot :-) eins og venjulega mun ég fylgjast vel með :p

lena said...

jeijj!!! gaman gaman, takk fyrir það sæta! :)